Skógarvinir 2009

geirlaugur - 31. janúar 2009 18:21

Jæja, þá er deildin komin af stað og var fyrsti fundurinn á föstudaginn 30.jan.

Okkur leiðtogunum hlakkar mjög svo til, enda á þetta eftir að vera mjög viðburðarík önn hjá okkur.

Við skelltum okkur í sund á fyrsta fundinum og fengum svo að borða á holtaveginum.

Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastóri skógarmanna kom sem gestur og spjallaði aðeins við okkur.

Næst hittumst við svo eftir 2 vikur eða semsagt þann 13. febrúar.

Þá ætlum við að fara í bíó á Akranesi og er því mikilvægt að drengirnir mæti tímanlega.

Rúta fer frá holtavegi 28 kl. 18 og búast má við að við verðum komnir til baka um 21:30, gæti dregist eitthvað.

Sjáumst þá hressir og kátir.

Leiðtogar skógarvina

Heimasvæði fyrir Skógarvini KFUM

admin - 30. október 2008 20:32

Hér er vettvangur fyrir Skógarvini til að halda úti vefsvæði.